Embla er ráðgjafa- og tæknistofa sem leggur áherslu á sjálfbæra og náttúrumiðaða nálgun við úrlausn umhverfis- og auðlindamála.

Við vinnum á breiðu sviði hvort sem er í land- eða vatnavistkerfum, þar með talið í ám, áreyrum, votlendi, mólendi, halllendi, í þéttbýli og á nær-strandsvæðum.

Embla getur séð um alla þætti náttúru miðaðra verkefna – allt frá frumathugunum og forgangsröðun verkþátta yfir í fullmótaða hönnun, samráð við hagsmunaaðila, verkstjórnun, byggingu og eftirlit að framkvæmdatíma loknum.

Verkefnasvið

  • • Endurheimt áa, áreyra og votlendis
    (e. River, floodplain and wetland restoration)
  • • Náttúrulegar flóðavarnir
    (e. Natural Flood Management )
  • • Vörur til að draga úr jarðvegseyðingu
    (e. Soil erosion control products)
  • • Tilbúin/samsett votlendiskerfi
    (e. Constructed wetlands)
  • • Vörur og þjónusta við votsáningu
    (e. Hydroseeding products and services)
  • • Endurheimt mólendis/votlendis
    (e.Peatland restoration)
  • • Sjálfbær stígagerð
    (e. Sustainable upland paths)
  • • Aðgerðir til varna rofi í hallandi landi
    (e. Slope stabilisation/ erosion control)
Peatland coco net install
  • Endurheimt áa, áreyra og votlendis
    (e. River, floodplain and wetland restoration)
Etb wetland apr 9th 4 edit
  • Tilbúin/samsett votlendiskerfi
    (e. Constructed wetlands)
Andakilsa
  • Sjálfbærar bakkavarnir
    (e. Sustainable bank protection)

Tækniþjónusta

  • • Landmótunarmat
    (e. Geomorphic assessments)
  • • Vatna/aurburðar líkanagerð
    (e. Hydraulic/ sediment transport modelling)
  • • Hæðar- og dýptarlínumælingar
    (e. Topographic/ bathymetric surveying)
  • • Mat á stöðugleika hallandi lands
    (e. Slope stability assessment)
  • • Vatnamælingar
    (e.Hydrological analyses)
  • • Mat á hnignun mómýra / mat á framræslu
    (e. Peatland erosion/ drainage surveys)
  • • Náttúrumiðuð hönnun og byggingarferlar
    (e. Nature-based designs and builds)
  • • CAD og GIS kortagerð og greining
    (e. CAD and GIS output)
  • • Sjónræn útfærsla á endaafurð
    (e. Graphic illustrations)
  • • Stýriverktaka og stjórnun verkefna
    (e. Contracting and construction)

Samfélag manna stendur frammi fyrir margvíslegum áskorunum vegna loftslagsbreytinga og minnkandi líffjölbreytileika. Til þess að mæta þessum áskorunum þarf aðra nálgun við úrlausn umhverfismála og auðlindanýtingar.

Náttúrumiðaðar lausnir miða að því að vernda, nýta á sjálfbæran hátt og endurheimta náttúruleg og breytt vistkerfi, með það að markmiði að auka líffjölbreytileika, auka þol vistkerfa gagnvart loftslagsbreytingum og lífsgæði manna. Í grunninn þá einbeitir Embla sér að því að laga umhverfisvandamálið sjálft fremur en afleiðingar þess með því að endurvekja náttúrulega ferla sem skapa forsendur fyrir stöndug vistkerfi.

Embla beitir nærgætnum, sjálfbærum og vistferlabyggðum lausnum sem byggja á vísindalegum grunni og eru framkvæmdar af reynslumiklum sérfræðingum. Þessi fræðilegi bakgrunnur gerir okkur kleift að skilja þær framtíðarkröfur sem gerðar eru til sjálfbærrar nýtingar á mikilvægum vistkerfum, sérstaklega í ljósi þeirra miklu umhverfisbreytingar sem nú eru til staðar. Okkar markmið er að tryggja öruggt athafnarými fyrir nútímakröfur mannlegs samfélags sem tekur tillit til þeirra grundvallarþátta sem þurfa að vera til staðar fyrir náttúruleg og skilvirk vistkerfi.

www.embla-nattura.is
info@embla-nattura.is
+354 770 8515